UMHVERFISSTEFNA
VALS
Umhverfis- eða sjálfbærnistefna er yfirlýsing Vals um helstu
áherslur félagsins varðandi umhverfismál og er henni ætlað að vísa
veginn til umhverfisvænna félags.
Til þess að stuðlað að minni mengun og sóun verðmæta leggur
Knattspyrnufélagið Valur áherslu á eftirfarandi þætti í
daglegu starfi:
-
Endurvinnslu í mannvirkjum félagsins
-
Endurnýtingu á sem flestum sviðum starfseminnar
-
Orkusparnað í mannvirkjum félagsins að Hlíðarenda.
-
Notkun á umhverfisvænum efnum
-
Félagið hvetur til almennrar þátttöku í umhverfisvernd og hefur
umhverfisstefnu bæði sýnilega og aðgengilega, jafnt starfsmönnum
sem gestum og almenningi, t.d. á heimasíðu félagsins.