Valkyrjur
Nafn | Starf | Netfang |
---|
Magdalena Kjartansdóttir | Formaður | valkyrjur@valur.is |
Svala Þormóðsdóttir | Varaformaður | |
Selma Dögg Víglundsdóttir | | |
Helena Þórðardóttir | Gjaldkeri | |
Eva Gunnlaugsdóttir | Ritari | |
Sigurlaug Rúnarsdóttir | Tengiliður | |
María Hjaltalín | | |
Varamenn í stjórn:
Auður Huld Kristjánsdóttir
Sigríður Eyþórsdóttir
Þann 12. apríl 2012 var haldinn stofnfundur Valkyrja - félags
kvenna í Val. Stofnfélagar telja um 70 konur sem tengjast félaginu
á mismunandi hátt.
Gamlar Valskempur sem hafa æft og keppt undir merkjum Vals,
núverandi leikmenn félagsins, mæður af hliðarlínunni og aðrir
velunnarar félagsins:
Verndari Valkyrja er Sigríður Sigurðardóttir sem var fyrst
kvenna og fyrsti einstaklingurinn í hópíþrótt til að hljóta
titilinn íþróttamaður ársins.
Tilgangur félagsins er að stuðla að betra og öflugara starfi hjá
knattspyrnufélaginu Val með sérstakri áherslu á jafnréttistefnu
Vals, bæði hvað iðkendur og stjórnun félagsins varðar.
Að þessu skal unnið m.a. með því að:
- Vera vettvangur fyrir konur til að eiga samskipti sín á milli
um málefni félagsins.
- Vera sýnilegt afl í innra starfi Vals.
- Beita sér fyrir því að unnið sé í samræmi við jafnréttisstefnu
Vals.
- Auka sýnileika kvenna og stuðla að fjölgun þeirra í stjórnum
félagsins.
- Styrkja uppeldis- og forvarnarþátt íþróttanna meðal iðkenda
innan félagsins.
Félagafundir verða haldnir mánaðarlega yfir vetrarmánuði.
Markmiðið með þeim fundum er að vinna í hinum ýmsu málefnum sem
tengjast félaginu - bæði til gagns og gamans.
Að auki er stefnt að því að vera með í það minnsta tvo fasta
viðburði á ári - Valkyrjukvöld og konukvöld.
Við hvetjum allar áhugasamar Valskonur til að hafa samband og
skrá sig með því að senda póst á netfangið valkyrjur@valur.is