Siðareglur
Siðareglur þessar eiga við um starfsmenn félagins (þjálfara
og aðra starfsmenn), alla meistaraflokksleikmenn, stjórnarmenn sem
og sjálfboðaliða sem eru í ábyrgðarhlutverki í ferðum og öðrum
uppákomum á vegum félagsins.
Barn eru allir þeir sem eru yngri en 18 ára. Barn í þessu
tilfelli getur bæði verið iðkandi sem og starfsmaður. Þegar fjallað
er um iðkanda í siðareglum þessum er átt við iðkanda í yngri
flokkum félagsins
- Beittu barn eða samstarfsmann aldrei, andlegu, líkamlegu eða
kynferðislegu ofbeldi.
- Leggðu barn eða samstarfsmann aldrei í einelti.
- Tilkynntu strax til yfirmanns eða siðanefndar ef þú hefur grun
um að barn eða starfsmaður sé beittur ofbeldi (andlegu, líkamlegu,
kynferðislegu eða einelti).
- Ekki vera vinur iðkanda sem er yngri en 18 ára á
samfélagsmiðlum. Eina undantekningin frá þessari reglu er ef
starfsmaður/stjórnarmaður og iðkandi eru bundnir nánum
fjölskylduböndum.
- Taktu aldrei að þér akstur iðkenda á æfingu eða í leiki nema
með vitneskju eða leyfi foreldra.
- Aldrei eiga í samskiptum við barn með kynferðislegum undirtóni
eða vísa í eitthvað slíkt.
- Ekki vera með niðrandi athugasemdir um iðkanda svo sem um
holdafar, kynþátt, kynhneigð, trúarskoðanir eða stjórnmálaskoðanir
iðkanda.
- Ekki tala á niðrandi hátt um foreldra eða forráðamenn
iðkanda.
- Ekki misnota stöðu þína innan félagsins í fjárhagslegum
tilgangi fyrir þig eða þér tengda.
- Ekki notafæra stöðu þína innan félagsins til eigin framdráttar
á kostnað félagsins.
- Sem starfsmaður ert þú bundinn trúnaði gagnvart persónulegum
upplýsingum sem þú verður áskynja í starfi. Lög um barnavernd
ganga þó þessu ákvæði að sjálfsögðu framar (t.d. ef barn segir þér
í trúnaði að það hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi þá ber þér
skylda til að segja frá).
Brot á siðareglum
Ef iðkandi, foreldri, stjórnarmaður, starfsmaður, félagsmaður,
sjálfboðaliði eða einhver annar telur að þessar siðareglur hafi
verið brotnar getur hann vísað málinu til siðanefndar Vals. Brot á
siðareglum Vals geta varðað brottrekstur úr starfi eða úr
félaginu.
Siðanefnd
Siðanefnd Vals er skipuð íþróttafulltrúa og tveim
aðalstjórnarmönnum sem eru tilnefndir af aðalstjórn
félagsins. Þessir aðalstjórnarmenn mega ekki eiga sæti í
stjórnum deilda félagsins né vera launaðir starfsmenn. Einnig skal
tilnefna tvo varamenn sem taka sæti aðalmanna ef aðalmenn telja sig
vanhæfa til að fjalla um mál vegna tengsla sinna við aðila þess.
Aðalstjórn tilnefnir varamenn hverju sinni ef þess gerist þörf.
Siðanefnd Vals hefur það hlutverk að kanna málavexti þeirra mála
sem vísað er til nefndarinnar og kalla hlutaðeigandi aðila til
fundar við sig. Siðanefnd Vals getur kallað eftir gögnum frá
stjórnum Vals sem og starfsmönnum félagsins ef gögnin tengjast því
máli sem er til umfjöllunar er. Siðanefnd er skylt að skila
skriflegri skýrslu til aðalstjórnar um hvert það mál sem kemur inn
á borð nefndarinnar. Einnig ber siðanefnd að skýra hlutaðeigandi
aðilum frá niðurstöðu málsins bréflega eða með fundi. Eftirfarandi
atriði skulu koma fram í skýrslu siðanefndar:
- Hvernig kom málið inn á borð siðanefndar
- Hverjir eru málavextir
- Hvernig vann siðarnefnd með málið
- Hver er niðurstaða siðarnefndar
- Niðurstöðu þarf að rökstyðja
Skýrslu skal skila til framkvæmdarstjóra og aðalstjórnar.
Skýrsla siðanefndar er trúnaðarmál.
Siðanefnd Vals getur komist að þeirri niðurstöður að mál sé of
alvarlegt til að fjallað sé um það innan Vals og vísað því beint
til viðeigandi yfirvalda (lögreglu og/eða barnaverndarnefndar eftir
atvikum). Siðanefnd skal ávalt fara í einu og öllu eftir
barnaverndarlögum við úrvinnslu mála.
Siðanefnd Vals ber að setja sér verklagsreglur og leitast við að
útkljá mál á sem skemmstum tíma.
Úrræði sem siðanefnd Vals getur beitt eru
eftirfarandi
Siðanefnd getur lagt til eftirfarandi niðurstöður til
framkvæmdastjóra og aðalstjórnar. En niðurstöður hennar eru
einungis leiðbeinandi fyrir framkvæmdastjóra og aðalstjórn Vals og
þau ekki bundin af þeim tillögum við afgreiðslu einstakra mála nema
mælt sé fyrir á annan veg í lögum.
- Láta málið niður falla
- Veita skriflega áminningu
- Leggja til við aðalstjórn félagsins tímabundna brottvísun úr
starfi
- Leggja til við aðalstjórn félagsins brottvikningu úr
starfi
- Vísa máli til viðeigandi yfirvalda (lögreglu og/eða
barnaverndaryfirvalda).
Allir þeir sem koma að starfi hjá Val þurfa að skrifa undir
þessar siðareglur áður en þeir hefja störf eða um leið og
siðareglur eru útgefnar.