Fréttir & Tilkynningar
Smelltu hér
til að komast inn á facebook-síðu íþróttaskólans
20 / 02 / 2019 - Enginn tími laugardaginn 23. feb. vegna
vetrarfrís grunnskóla í borginni
Við minnum á að það verður enginn íþróttaskóli um helgina vegna
vetrarfrís í grunnskólum borgarinnar.
Njótið helgarinnar með ykkar bestu og sjáumst fersk í næsta tíma
laugardaginn 2. mars í gamla sal.
23 / 01 / 2019 - Íþróttaskóli Vals fellur niður 26. janúar
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna fellur íþróttaskóli Vals niður
laugardaginn 26. janúar. Í staðinn bætist við nýr tími laugardaginn
13. apríl.
Næsti tími verður því laugardaginn 2. febrúar og hlökkum við til
að taka á móti krökkunum þá.
22 / 04 / 2018 Vorönn íþróttaskóla Vals lokið - krakkarnir
leystir út með gjöfum
Íþróttaskóla Vals lauk á dögunum eftir viðburðarríka önn undir
styrkri stjórn Kolbrúnar Franklín og Elfu Björk
Hreggviðsdóttur.
Það var kátt á hjalla í skólalok þar sem þátttakendur skólans
voru leystir út með skvísum frá Ella´s Kitchen.
Skólin hefur göngu sína á ný næstkomandi haust og hlökkum við
til að taka á móti sem flestum á ný.
16 / 03 / 2018 Íþróttaskólinn í gamla sal 17. mars - gengið inn
á gamla gang
Íþróttaskóli Vals mun fara fram í gamla salnum á morgun,
laugardaginn 17. mars.
Vegna ráðstefnu sem er að Hlíðarenda á sama tíma höfum við ekki
aðgang að aðalandyri hússins og því munum við nota búningsklefa á
gamla gangi og innganginn að þeim (Sjá m.f. mynd).
09 / 02 / 2018 Íþróttaskólinn fellur niður 10.
febrúar
Íþróttaskóli Vals fellur niður laugardaginn 10. febrúar vegna
verðurs. Gul viðvörun er í gildi og spáir norðvestan hvassviðri eða
stormi þar sem hviður geta farið í allt að 30 metra á sekúndu.
Hætta er á blindbil og snjókomu með tilheyrandi skafrenningi og því
líklegt að samgöngur raskist af þeim sökum.
Næstu helgi, eða þann 17. febrúar verður íþróttaskólinn svo í
fríi vegna vetrarleyfis grunnskóla. Næsti íþróttaskóli verður
þ.a.l. laugardaginn 24. Febrúar og hlökkum við til að taka á móti
krökkunum að nýju.
Eigið góða helgi og farið varlega í óveðrinu.
02 / 01 / 2018 Skráning á Vornámskeið opnar 4. janúar
Skráning á vornámskeið íþróttaskóla Vals opnar 4. janúar n.k.
Íþróttaskólinn hefst svo laugardaginn 20. janúar og síðasti tími
skólans er 14. apríl.
Dagskrá íþróttaskólans vorið 2018:
20. janúar (Stóri salur)
27. janúar (Stóri salur)
3. febrúar (Stóri salur)
10. febrúar (Gamli salur)
17. febrúar (frí vegna vetrarleyfis)
24 febrúar (Stóri salur)
3. mars (Stóri salur)
10 mars (Gamli salur)
17. mars (Gamli salur)
24. mars (Stóri salur)
31. mars (frí vegna páskaleyfis)
7. apríl (Stóri salur)
14. apríl (Stóri salur)
16 / 10 / 2017 (Enginn íþróttaskóli 21. okt 2017 vegna
vetrarleyfis)
Vegna vetrarleyfis grunnskólanna verður ekki íþróttaskóli
laugardaginn 21. október í Valsheimilinu.
Hér að neðan má sjá tímana sem eru eftir á haustnámskeiði:
28. október (Stóri salur)
4. nóvember (Gamli salur)
11. nóvember (Stóri salur)
18. nóvember (Stóri salur)
25. nóvember (Stóri salur)
2. desember (Stóri salur)
Hlökkum til að sjá ykkur 28.
nóvember!!!!
21 / 09 / 2016
Komið þið sæl.
Takk fyrir síðasta laugardag. Eins og ég tók framm í tímanum
mættu fleiri en við áttum von á og því ekki með nægilega mikið af
þjálfurum. Við erum búin að ganga frá þeim málum og skipta hvorum
aldurshóp í 3 hópa.
Við ætlum að halda aldurskiptingunni milli tímanna óbreyttri
þ.e.a.s börn fædd 2014 mæta kl.9.10 og börn fædd 2013 og 2012 mæta
kl.9.50.
Munið að það er mikilvægt að vera mætt þegar tíminn
byrjar.
Kveðja - Sigrún
- - -
15 / 09 / 2016
Komið þið sæl
Barnið þitt er skráð í íþróttaskóla Vals sem hefst næstkomandi
laugardag. Við erum staðsett í íþrótthúsi Vals. Búningsherbergi eru
fyrir aftan afgreiðslu áður en komið er inn í sal, gott er að geyma
yfirhafnir og aðra fylgihluti þar.
Barnið þitt er í eldri hóp og er tíminn frá kl.9.50-10.30.
Mikilvægt er að vera mætt þegar tíminn byrjar og stundum er gott að
mæta 5-10 mínútum áður en tíminn hefst til að barnið átti sig á
aðstæðum áður en tíminn hefst.
Námskeiðið er frá 17.september - 19. nóvember eða 10
skipti.
Varðandi fatnað er gott að vera í fötum sem auðvelt er að hlaupa
og leika sér í.
Tímin er uppbyggður með 1-2 hóverkefnum, boltaþrautabraut og
þrautabraut.
Endilega finnið okkur á facebook undir
íþróttaskóli vals.
- - -