LEIÐBEININGAR | Kaupa
æfingagjöld/námskeið í gegnum vefverslun
Hérna má sjá leiðbeiningar hvernig þú
kaupir þjónustu í vefverslun.
- Fyrsta skrefið er að fara á síðu félagsins www.sportabler.com/shop/valur".
Í þessu sýnidæmi er síða Sportabler félagsins notuð www.sportabler.com/shop/abler.
- Næst þarftu að skrá þig inn í hægra horninu uppi "Innskrá
í Sportabler". Í hnettinum við hliðiná getur þú valið
tungumál.
3. Ef þú ert með Sportabler aðgang nú þegar þá
notar þú hann til að skrá þig inn. Ef þú ert ekki með
Sportabler aðgang þá velur þú nýskrá neðst í hægra
horninum. ATH mikilvægt er að þú skráir þig
inn sem þú sjálfur en ekki sem barnið
þitt.
4. Ef nýskráning er valin þá þarftu að
setja inn tölvupóst og kennitölu. Þegar þú smellir á Senda boð
færðu staðfestingarpóst í tölvupósti og fylgir því ferli, velur
lykilorð og ert þá kominn með aðgang. ATH
staðfestingarpóstur gæti endað í Spam, junk eða trash
í
tölvupóstinum.
5. Ef það kemur
enginn staðfestingarpóstur á netfangið hjá
þér eða villuboð kemur upp þá biðjum við ykkur að hafa samband
í þjónustuver Sportabler þar sem öll mál eru
leyst. (Gyllta blaðran niðrí hægra horninu á sportabler.com)
6. Þegar allt er klappað og klárt þá tekur við innskráning. Þegar
þú skráir þig inn ertu beðinn um að auðkenna þig.
Í kjölfarið lendir þú inn á island.is þar sem þú getur auðkennt
þig með rafrænum
skilríkjum eða íslykli
7. Þegar þú lýkur við auðkenningu þá ferðu
beint inn á vefverslunina og getur keypt þá þjónustu sem er í
boði. ATH þetta ferli þarftu bara að ganga í gegnum einu
sinni.. Efst vinstra megin sérðu sjálfan þig og börnin þín
og upp í hægra horninu sérðu yfirlit yfir reikninga og áskriftir
sem þú hefur keypt.
8. Næsta skref er að finna þá þjónustu sem þú vilt kaupa fyrir
sjálfan þig eða barnið þitt. Hægt er að nota frístundastyrk,
greiðsludreifingu og systkinaafslátt í kaupferlinu en það er í
höndum félagsins hvort það sé boðið upp á slíka möguleika.
Í þessu sýnidæmi hér fyrir neðan ætla ég að
kaupa Haust æfingagjöld í 4.fl karla í handbolta hjá Sportabler
félaginu fyrir Hlyn Kára og smelli á kaupa.
Í þessu tilfelli er boðið upp á notkun frístundastyrks,
systinaafslátts og greiðsludreifingu. (Sjá mynd fyrir neðan).
Skref 1 - Velja hvaða
iðkanda þú ert að kaupa þjónustuna fyrir.
Skref 2 - Í þessu
tilfelli á Hlynur Kári rétt á 10% systkinaafslætti þar sem systir
hans keypti æfingagjöld hjá sama félagi. Ef félagið sem þú verslar
hjá bíður upp á systkinaafslátt þá kemur hann inn í skrefi 2 í
kaupferlinu, ef enginn afsláttur er í boði kemur þetta skref ekki
upp.
Skref 3 - Í þessu skrefi
velur þú hvort þú viljir nota frístundastyrk eða ekki. Í þessu dæmi
haka ég í Já til þess að geta notað styrkinn. ATH þessi
möguleiki kemur ekki upp ef þjónustan sem er til sölu býður ekki
upp á frístundastyrk.
Skref 4 - Í
skrefi 4 sérðu hvað þú átt mikinn frístundastyrk inni og í línunni
fyrir neðan velur þú þá upphæð sem þú vilt ráðstafa. Í þessu dæmi á
ég 54.000 kr í frístundastyrk en kýs að ráðstafa 10.000 kr af
þeirri upphæð.
Skref 5 - Hérna
býður Sportabler félagið upp á greiðsludreifingu. Ég vel að dreifa
greiðslunum á 4 mánuði í þessu dæmi.
Skref 6 - Hérna fyllir
þú inn kortaupplýsingar. Hægt er að
nota kredit eða debit kort.
Hægra meginn í kaupferlinu er svo kvittun sem
þú sérð hvernig upphæðin reiknast eftir notkun á frístundastyrk,
systkinaafslætti og greiðsludreifingu.
Lokaskref- Þú smellir á ganga frá greiðslu og
þá ættu kaupin að ganga í gegn og kvittun fyrir kaupunum kemur á
tölvupóstinn hjá þér. Þú getur einnig séð kvittanir í reikningar
efst í hægra horninu á síðunni.
Í þessu dæmi fer Hlynur Kári beint inn í 4.fl kk handbolti hjá
Sportabler félaginu. Ef um nýskráningu er að ræða mælum
við með að þú niðurhalir appinu og skráir þig inn til að geta
fylgst með dagskránni og verið í samskiptum við þjálfara. Ef þú
varst með aðgang fyrir kemur dagskráin sjálfkrafa í
appið.