Afrekssvið Vals
Afrekssvið knattspyrnufélagsins Vals heldur utan um
meistaraflokkslið í karla- og kvennaflokki í knattspyrnu,
handknattleik og körfuknattleik, ásamt því heyra 2. flokkar
félagsins undir sviðið.
Valur státar af ótrúlegum hóp afreksfólks í gegnum tíðina. Hér
eru þau sem hlotið hafa titilinn Íþróttamenn Íslands undir merkjum
Vals:
1964: Sigríður Sigurðardóttir,
handknattleikur
1975: Jóhannes Eðvaldsson, knattspyrna
1997: Geir Sveinsson, handknattleikur
2002: Ólafur Stefánsson, handknattleikur
2007: Margrét Lára Viðarsdóttir,
knattspyrna
2008: Ólafur Stefánsson, handknattleikur
2009: Ólafur Stefánsson, handknattleikur