Kristinn Freyr Sigurðsson skrifar undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals
Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals. Kristinn er að hefja sitt fjórða tímabil með Val og er fyrir löngu orðinn einn af mikilvægustu mönnum liðsin, innan vallar sem utan.
Kristinn Freyr er fæddur árið 1991, kom til Vals frá Fjölni í byrjun árs 2012. Kristinn hefur spilað 65 leiki fyrir Val í deildar og bikar og skorað í þeim fimm mörk.
Í viðtalinu hér að neðan ræðir Kristinn sérstaklega um mikilvægi stuðningsmanna Vals. Viðtalið er virkilegt skylduáhorf fyrir alla Valsara.