Bjarni Ólafur Eiríksson íþróttamaður Vals árið 2016

Bjarni Ólafur Eiríkkson var í dag kjörinn íþróttamaður Vals árið 2016. Þetta er í þriðja sinn sem Bjarni er kjörinn íþróttamaður Vals og annað árið í röð (2005, 2015 og 2016).
Bjarni hefur leikið 259 leiki fyrir Val og skorað í þeim 16 mörk. Hann spilaði 19 leiki í efstu deild sl. sumar og 5 leiki í bikarnum ásamt því að vera varafyrirliði Vals. Hann hefur leikið 21 landsleik fyrir Ísland. Bjarni er og hefur verið algjör lykilmaður í liði Vals undanfarin ár og átt stóran þátt í bikarmeistaratitlum félagsins undanfarin 2 ár.
