"Spennandi að koma til Vals", Nikolaj Kohlert skrifar undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals
Danski miðjumaðurinn Nicolaj Kohlert hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals.
Nicolaj er 23 ára og hefur m.a. verið á mála hjá
enska stórliðinu Liverpool, þá með varaliðinu. Þaðan fór hann til
Rangers áður en hann gerði samning við Silkeborg í Danmörku. Síðast
lék Nicolaj í Færeyjum á láni.
Nicolaj hefur spilað með U-16,17,18 og 19 ára
landsliðum Dana.
Valur.is náði tali af Nicolaj í tilefni af
félagaskiptunum:
"Það er virkilega spennandi að koma til Vals.
Þetta virkar mjög flott félag með mikla sögu og hefð. Ég kom hingað
nýlega í yfir helgi og ræddi við fólk í félaginu og lýst mjög vel á
allt hérna.
Ég get spilað aftarlega á vellinum eða á miðri miðjunni, stundum
kallaður "box-to-box" spilari. Ég vil vera mikið í boltanum, byggja
upp sóknir og dreifa boltanum til liðsfélaga minna.
Íslenskur fótbolti er á mikilli uppleið og fær mikla athygli í dag, mikið til þökk sé EM á síðasta ári. Íslenskir knattspyrnumenn hafa bætt sig mikið og það er mikið tempó í Íslenska boltanum, ég hlakka til að koma."