"Gott að vera í Val", Nikolaj Hansen semur til tveggja ára við knattspyrnudeild Vals.

Nikolaj Hansen, 23 ára danski sóknarmaðurinn sem spilaði með Val á síðustu leiktíð hefur nú skrifað undir tveggja ár samning við knattspyrnudeild Vals. Nikolaj er kominn til Íslands og byrjar undirbúningstímabilið með liðinu. 

Nikolaj spilaði 11leiki með Val á síðasta tímabili og skoraði þá 6 mörk. Nikolaj meiddist alvarlega um mitt tímabil og náði ekki að klára það líkt og hann vildi.

"Það er gott að vera í Val, stefnan er sett hærra á næsta tímabili og við viljum vinna þá titla sem í boði eru", sagði Nikolaj í tilefni af samning hans. Ítarlegra viðtal við Hansen má lesa á fésbókar síðunni ValFótbolta.

Knattspyrnudeild lýsir yfir ánægju að hafa tryggt krafta Nikolaj Hansen næstu tvö árin.