Nýr samningur við Hummel

Á fjölmennri kynningu á leikmönnum Í Vodafonehöllinni í dag var undirritaður nýr 4 ára búningasamningur við Hummel. Mikil ánægja er með samstarfið við Hummel sem hófst árið 2007, meðal foreldra, leikmanna og stjórnar.

Með tilkomu samningsins verður Hummel einn af aðal styrktaraðilum Knattspyrnufélagsins Vals.

Samninginn undirrituðu Ævar Sveinsson umboðsmaður Hummel á Íslandi og Sveinn Stefánsson frá aðalstjórn Vals.