Nýr leikmaður í handbolta kvenna.

Eva Björk Hlöðversdóttir hefur skrifað undir eins árs samning við handknattleiksdeild Vals. Eva, sem er 35 ára gömul, er uppalin í Gróttu en hefur einnig spilað með ÍBV og síðast með Hamar í Noregi undir stjórn eiginmanns síns Alfreðs Finnssonar. Eva kemur með mikla reynslu í Valsliðið og er afar öflugur varnarmaður. Hún smellpassar því inn í liðið, sem er orðið afar spennandi blanda eldri og yngri leikmanna. Við bjóðum Evu hjartanlega velkomna í Val.

 

eva björk.jpg